Velkomin á upplýsingavef Samtaka lánþega

Þú getur skráð þig inn hér til hliðar og gerst áskrifandi að færslum og rafrænu fréttabréfi

Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Guðmundur Andri Skúlason

Member Login

Lost your password?

Not a member yet? Sign Up!

Svona gerum við !

Mikið hefur verið spurt um hvernig eigi að bera sig að við að lækka lánin sín, enda ekki skrítið að það vekji athygli þegar menn finna aðferð við að lækka þær um allt að 65%.

Og það dásamlega við þetta er að þetta er einfalt, framkvæmanlegt og í alla staði eftir skilmálum upphaflegra skuldabréfa.

Ég vil taka fram, að það er mikilvægt að þið skoðið vel hvernig ykkar skuldabréf hljóða. Þau eru mismunandi og þó ég nefni ekki alla banka þá getur vel verið að einhver bréf frá bönkum sem ekki eru hér nefnd, komi til greina. Í öllum tilfellum er velkomið að senda afrit af skuldabréfinu á gandri@gandri.com – subject: Skuldabréf.

Til að taka þátt í þessu verkefni og lækka þar með höfuðstól og greiðslubyrði er best að fara eftir neðangreindu.

  1. Ef lánið er erlent myntkörfulán þá þarf að fara yfir skilmála skuldabréfsins til að athuga hvort tekið sé fram að lánþegi skuldi bankanum JAFNVIRÐI tiltekinnar krónutölu. Sé svo, þá ætti þessi leið að vera fær. Ef þið eruð í vafa þá nálgist þið afrit af skuldabréfi ykkar og sendið á gandri@gandri.com – subject: Skuldabréf.
  2. Sé um að ræða s.k. JAFNVIRÐIS skilmála þá þurfið þið að nálgast greiðsluáætlun sem undirrituð var samhliða láninu. Á greiðsluáætlun kemur fram sú upphæð sem áætlað var að greidd yrði í hverjum mánuði. Þessi upphæð getur að sjálfsögðu breyst lítillega frá áætluninni, ef lánið ber breytilega vexti, en þó er best að halda sig við áætlunina til einföldunar. Sú upphæð sem fram kemur við hvern gjalddaga er síðan í samræmi við skilmála, greidd af láninu með eftirfarandi hætti:
    1. Þið stofnið reikning í eigin nafni, og leggið þar inn mánaðarlega þá upphæð sem greiða á af láninu, sendið millifærslukvittun til lánveitanda ásamt tilkynningu um ástæðu þessarar greiðslutilhögunar. Slíka tilkynningu getið þið fengið hjá Samtökum lánþega. Þar sem vextir á innlánsreikningum eru í flestum tilvikum hærri en útlánsvextir erlendra lána þá er þessi leið hagkvæmari.
    2. Þið greiðið til lánveitanda samkvæmt greiðsluáætlun og sendið í upphafi tilkynningu til lánveitanda um ástæðu þessarar greiðslu. Slíka tilkynningu getið þið fengið hjá Samtökum lánþega.
  3. Uni bankinn ekki ykkar túlkun á lánaskilmálum og greiðslufyrirkomulagi ykkar þá fáið þið sent innheimtubréf hvar þið eruð krafin um frekari greiðslu. Í slíkum bréfum eru oftar en ekki settar fram hótanir um dráttarvexti, lögfræðikostnað og gjaldfellingu. Slíkt hefur engin áhrif sé innheimtubréfinu mótmælt skriflega um leið og það berst. Mótbárur við innheimtubréfum er fáið þið hjá Samtökum lánþega.
  4. Láti bankinn ekki af innheimtum þá látið þið ekki af mótbárum. Það er því mikilvægt að fylgjast vel með öllum bréfum sem varða skuldabréf sem ætlunin er að lækka. Með því að setja fram rökstuddar mótbárur við túlkun bankans og þar með styðja við okkar túlkun, þá höfum við komið í veg fyrir að bankinn geti fullnustað skuldina án undangengins dóms, og slíkt dómsmál teljum við að yrði okkur í hag.
  5. Samtök lánþega munu aðstoða ykkur á öllum stigum málsins. Jafnframt er það ætlun Samtaka lánþega að innheimta hógvært gjald sem rynni í sjóð sem stæði undir kostnaði af málsvörn ef banki tæki sig til og höfðaði mál gegn einhverjum í hópnum. Samtökin munu í slíku tilfelli aðstoða við allar hliðar máls, enda gildir í þessu, allir fyrir einn.
  6. Þau ykkar sem vilja taka þátt í þessu senda skilaboð til Samtaka lánþega, gandri@gandri.com – subject: Lausnin.

Þetta er augljóslega ekki afskrift eða leiðrétting sem tekur gildi nú þegar, en þetta tryggir hag okkar sem lánþega og þetta tryggir jafnframt réttarstöðu okkar gagnvart fjármálastofnunum. Þetta er skref í rétta átt og skref sem klárlega setur þrýsting á fjármálastofnanir og stjórnsýslu.

Við teljum lögin augljóslega vera okkar megin og að það sé jafnframt augljóst samkvæmt skilmálum skuldabréfanna að okkar túlkun sé rétt og því hafi bankinn enga heimild til að hækka höfuðstól og afborganir eftir behag.

Bankinn skálkar að sjálfsögðu í skjóli þess að við, litla fólkið, tölum ekki saman. En nú skal verða breyting þar á.

Það er nefninlega til lítils að vera með fulla höll af hrópandi áhorfendum ef enginn er tilbúinn að spila leikinn og leika til sigurs.

Ein athugasemd við “ Svona gerum við ! ”

  1. Ármann Jakob Pálsson on 02/02/2010 at 20:35

    “Það er nefninlega til lítils að vera með fulla höll af hrópandi áhorfendum ef enginn er tilbúinn að spila leikinn og leika til sigurs.”

    Nákvæmlega, við þurfum að standa saman, ekki hengja haus og bara borga það sem bankinn segir um leið og hann hótar einhverju.
    Þetta er óréttlátt og ef fólki finnst almennt fínt og í lagi að borga eitthvað sem það skuldar ekki þá það en mér finnst það ekki og finnst furðulegt að allir taki ekki þátt í þessu fína framtaki.

Skrifið athugasemd