Velkomin á upplýsingavef Samtaka lánþega

Þú getur skráð þig inn hér til hliðar og gerst áskrifandi að færslum og rafrænu fréttabréfi

Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Guðmundur Andri Skúlason

Member Login

Lost your password?

Not a member yet? Sign Up!

Siðferði Sýslumannssona í dag

Þann 24. apríl 2001 sendu Samtök banka og verðbréfafyrirtækja frá sér umsögn um vaxtalögin. Það eru þessi frægu lög nr. 38/2001 sem allir eru að vitna í þessa dagana þegar tekist er á um lögmæti eða ólögmæti gengistryggðra lána.

Nú, – hvað um það.

Þessi umsögn, sem undirrituð er af Guðjóni Rúnarssyni framkvæmdastjóra Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja, er um margt áhugaverð.

Ekki bara af því að Guðjón þessi er sonur sýslumannsins í Reykjavík, nei nei.

Það er innihaldið sem aldrei þessu vant er áhugavert.

Guðjón þessi, Sýslumannssonur, hefur undanfarið staðið með samtökum sínum og haldið því fram að hvergi sé tekið á því með skýrum hætti í þessum frægu lögum, að það sé bannað að tengja lán við erlenda mynt.

Lögfræðingar á vegum samtaka þeirra sem Guðjón þessi, Sýslumannssonur, er í forsvari fyrir, hafa eytt mörgum blaðsíðum af sérþrykktum pappír í greinargerðir hvar það er fullyrt að þessi gengistryggðu lán séu bara alls ekki bönnuð.

Og á þessum rándýru greinargerðum byggðu fyrirtækin undir regnhlíf Guðjóns, þegar lán voru gengistryggð í bílförmum.

Og Guðjón þessi, Sýslumannssonur sagði bara allt í gúddí. – Þetta er í lagi strákar !

En aftur að umsögninni frá 2001.

Þar segir orðrétt:

“Ekki verða seð hvaða rök eru fyrir því að takmarka verðtrygginguna við þessar vísitölur. Það gengur gegn almennu samningsfrelsi, enda getur verið fullkomlega eðlilegt að viðsemjendur fái að nota aðrar viðmiðanir sem þeir koma sér saman um. Til að skýra þetta betur má benda á að eins og lögin eru í dag (og verða að óbreyttu frumvarpi) er óheimilt að tengja lánssamninga í íslenskum krónum við erlenda mynt, t.d. danskar krónur.”

Það verður því ekki betur skilið en að Guðjón þessi, Sýslumannssonur, hafi vitað allan tímann að þessi lán voru ekki í samræmi við lög.

Og samt studdi hann þessi lán í verki og lagði blessun sína yfir gjörninginn, – og það var ekki lítil blessun. Sýslumannssonurinn sjálfur !

Það er því ekki skrítið að augun í mér verði örlítið kringlótt, og ég yfir höfuð frekar hissalegur í framan, þegar ég spyr sjálfan mig að því.

Hvert sé lögfræðilegt siðferði Sýslumannssona í dag?

5 athugasemdir við “ Siðferði Sýslumannssona í dag ”

  1. Theódór Norðkvist on 04/03/2010 at 15:26

    Þetta er svakalegt. Sem forsvarsmaður bankanna er Guðjón Rúnarsson að siga pabba sínum á fólk út af lánum sem hann veit að eru ólögleg.

    Ísland óspilltasta land í heimi, eða þannig.

  2. Jakob Guðmundsson on 05/03/2010 at 02:17

    Samkvæmt þessum upplýsingum liggur fyrir að lánaveitendur þ.e. bankar og önnur fjármögnunarfyrirtæki vissu allan þennan tíma að þeir voru að brjóta lög, og þetta plagg á að fara beint í Kastljósið og fletta ofan af þessu liði, sem að greinileg kann ekki að skammast sín.

  3. Kristján Birgisson on 13/03/2010 at 20:40

    Yndislegt hvernig þú tengir orð og gjörðir þessa manns við föður hans Guðmundur, það tengist svo vel umræðuefninu hvað hann gerir. Endilega grafðu upp við hvað móðir hans starfar, þá verður þessi pistill fullkomlega málefnalegur.

    Því ekki stendur þessi grein um misvísandi frá framkvæmdastjóra SFF ein og óstudd, eða hvað?

  4. Ægir Geirdal on 15/03/2010 at 09:06

    Jú endilega að fá að vita hvað mamma hans gerir,svo maður geti áttað sig á hvaðan Guðjón Rúnarsson hefur siðleysið.Er það bara frá pabbanum eða er þetta almennt uppeldið.Þesii maður hefur varið fjármálafyrirtækin með oddi og egg í veikri von um að fá að sleikja enn einn rassinn með bros á vör.
    Siðleysið hefur verið leiðarljós þessarra manna,sem komu að fjármálabrask-
    inu og fremstur í fylkingunni reið Sigurjón Þ.Árnson með Guðjón Rúnarsson
    fastan í rassgatinu á sér.Skælbrosandi báðir tveir.

  5. Soffía Bæringsdóttir on 19/04/2010 at 14:09

    Já spurning hvort siðleysi sé arfgengt eða í uppeldinu, hvaðan hefur þú þitt Ægir?

Skrifið athugasemd